RAKEL FER TIL HAWAII!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1708 dögum
RAKEL FER TIL HAWAII !!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1708 dögum
Nýjustu myndirnar !
Við tvær
10.11.2007 18:45:34 / Eydis

nýtt blogg

láta vita frá nýju bloggi frá nýjum meðlimum, just check it out.. :D http://www.blog.central.is/welas

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 19:38:26 / Eydis

Já Fínt!

Nýjar myndir!

Hæ !

föstudagskvöld og ég nýývöknuð..:D ekkert að gera í kvöld í þessu veðri nema kanski kúra og horfá dvd...;) mér finnst ekkert svo gaman að við stelpurnar bloggum aldrei þannig ég ákvað að blogga þó svo ég hafi ekkert að segja frá..

ágætt í skólanum, verð bara að viðurkenna það að mér fannst 100 sinnum skemmtilegra á seinustu önn..:s líka bara komin með óóógeð að keyra á milli.. og ekkert skemmtilegt fólk í þessum skóla, 1 á móti 20 eðlilegt fólk í þessum skóla ... hehe en jamm ég er byrjuð á hárhúsi kötlu með skólanum og það er geggjað fínt, og líka í olís, þannig það er nóg að gera hjá mér:P svooo er ég að fara til dk 22 nóv til hennar völu minnar:P með unni systir mömmu og gunnsu ;) ætla fara að versla jólagjafir og svonna...

svoo er tónlistarkeppnin á næsta föstudag.. hlakka alveg til ..;D æjj hef ekkert meira að segja..

nema Aníta er á lausu !! :haha:


 

já sæll !! :D Eydís

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 23:47:21 / Eydis

Til sölu

renault megane árg. 1999 grát á litinn, vel með farinn. á góðum nagladekkjum, ný skoðaður, í topp standi, keyrður 190.´þús. ásett verð: 280þus. krúttlegur bíll með sál ;)

upplýsingar hjá mér í síma 8660813 - Eydís


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 20:16:24 / Rachel

jææææææææææææææææææja loksins

Jæja loksins eru komnar nýjar myndir á þessa blessuðu síðu okkar:D

 

Njótið

 

RAKEL


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 19:32:07 / Rachel

long time no see...

Ég held það sé löngu komin tími á nýja færslu hjá mér. Þar sem ég er löngu komin heim eða svona. Það var allavega rosalega gaman hjá mér úti. Skemmti mér ógeðslega vel og eignaðist marga góða vini. Ætla aftur þangað einhvern tímann. Kannski næsta sumar og tek einhverja vinkonu mína með :) En síðan  er líka ógeðslega gott að koma heim. Stelpurnar tóku ekkert smá vel á móti mér ! Eydís byrjaði á því að hringja í mig og spurja hvar ég væri og ég sagðist vera á leiðinni heim. Hún sagðist þá vera á leiðinni í skólann og sagðist ætla bara að hitta mig eftir skóla. En svo þegar ég kom heim til mín þá biðu þær allar inní eldhúsi með bakarísmat handa mér ! ÉG Á SVO ÓGEÐSLEGA GÓÐAR VINKONUR :**

Það er margt skemmtilegt búið að ske síðan ég kom heim. Ég, Eydís, Aníta, Erna og Oddný fórum í bústað. Ég fór samt heim:$ Ýkt leiðinleg vinkona. Ég veit. En það var samt ógeðslega gaman. Tók fullt af myndum, á bara eftir að setja þær inn. Svo var náttúrulega Októberfest. Sem var frekar misheppnað fyrir mig. Var alveg alltof full. heheh. Ætla alveg engann veginn að drekka tópas pela aftur ;) Svo í gær fórum við á rúntinn, ég, oddný, erna og eggert. Fórum á myndaflipp niðrá langasandi ;D Vonandi fer oddný að setja þær myndir inn því þær eru svo flottar !!

En ég segi þetta bara gott í bili. Vonandi bíðiði spennt eftir nýjum myndum! Komin tími á að bæta þetta blogg hjá okkur Eydísi;D

 

RAKEL


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 21:16:33 / Eydis

...

NEnnisssu ekki meiiir...

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 17:46:36 / Eydis

life is life.. lalalala

skal vi snakke dansk nu??

neeeeej de skal vi ikke gor!:P en allvega ætla blogga smá frá gærkvöldinu meðal annars :D

fór á danska daga með Jón Steinar, Anítu, Oddný og Ernu, lögðum af stað um hálf 9 leytið.. komum við í hyrnunni afþví Oddný þurfti að kaupa sér banana, afþví mamma hennar sagði henni að gera það því það er svo mikið B vítamín or sum þannig hun yrði ekki þunn.. hehe, great. komum um hálf 11 leytið eða aðeins fyrr upp á tjaldsvæðið þarna, fullt af skagamönnum, kára liðið, aqua, hegadda, junkies og fleyra fólk, djöfull eru akranesingar pirrandi.. allt í einu duttu þeim í hug að kveikja í bál ! og syngja!.. ekkert venjulegasta bál sem ég hef séð en jæja, tjaldstólar, peysa, gras og fleyra drasl.. á ekki til orð, hallæri ! :haha: ég var orðin soldið smeik þegar nokkrir strákar voru farnir að hoppa þarna yfir bálið og labba oní það og sitja við hliðiná því.. þannig ég var geggjað glöð þegr löggan kom á svæðið og þá var brennan búin... svosem ágæt brenna. :|

jæja... sátum svo aðeins hjá tjaldinu hjá eitthverjum og voru nokkrir strákar, stebbi, kári, högni, aron örn, jón steinar, ölli og eitthverjir,, að spila á gítar og syngja, stemmari!.. síðan var bara haldið niðrí bæ, fórum ég aníta jón steinar og andri már á bílnum mínum og lögðum honum þarna niðrí bæ... eða bæ ?..  jón steinar fann band á götunni þannig ég var með hann í bandi það sem eftir var að kvöldinu... að hans vilja!!;D heheh en ég slepptonum... fórum að dansa niðrá bryggju og svo hófst dramað:]

þetta var bara hið fínasta kvöld.. ég driver, alveg að sofna á leiðinni heim, en krakkarnir voru svo góðir við mig að syngja öll saman, jon steinar er heví goður að syngja rómeró júlía.. "þegar kaldir hausar vindsins blása". góður. vorum komin heim um 5 eða eitthvað.. og var samt alveg heeeví þreytt´þegar ég þurfti að mæta í vinnu kl 12..

Rakel ég hitti mömmu þina og pabba og boggu frænku!.. mammaþín var í góðu :D

en já ætla að fara aðleggja mig... þetta var geðveikt góð vinnu+djammhelgi.. því á föstudagin var líka gleðidagur hjá mer og jóni, vorum með unni systir, önnu mariu og möllusöndru að drekka aðeins og kíktum svo á mörkina það var líka bara ótrúlega gaman, skrýtið ? en júú það er satt:D

ætla hafa þetta gott.. og leggjamig og taka svo smá desperat með jóni...

blelli relli makkarelllelei;D;*


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 11:35:48 / Eydis

i was born to be a kids, killah! ;D

jæja ætla að koma með eina litla færslu, því ég mátti það ekki í gærkvöldi því jón var að reyna að sofna.. hehe, en þá er ég allavega vöknuð og ligg upp í rúmi með litlu sætu bleiku fartölvuna mína, ýkt nice að vera komin með fartölvu..

en þessi færsla er þó bara tileinkuð skólanum,, hvað mig hlakkar alveg óóóóóendanlega mikið til þess að fara í skólann aftur!! þið trúið þessu ekki.. en mér finst skólinn alveg topp5 skemmtilegast, svo gaman að læra hárgreyðslu, og nuna er ég að fara í 2 bekk og þá fæ ég að læra meira :D en samt ekkert svo gaman að keyra ein á morgnanna, hver vill vera samfó ?:] maður fer eiginlega bara á hausinn á því að keyra á milli daglega..

skrapp til rvk í morgun, þurfti svo skó, og kom óvart peysa með.. en það er alltílagi ;) fór svo að vinna kl 4.. bara fínt. sumarið er alveg að verða búið, og mér finst ég vera nýbyrjuð að vinna.. en svona er þetta, þetta sumar er bara búið að vera mjög fínt, mallorca í 2 vikur og svo bara akranesið, en er að vona að við stelpurnar förum í bústað í vetur eða bráðlega... er þaggi aníta? ;) það væri geggjað... en samt væri ég alveg til í að fara eftir 19 nóvember,, því þá er aníta búin að leyfa sér að fara byrja drekka... !! ekkert gaman að hafa hana endalaust edrú..þú ert ekkert skemmtileg þannig aníta!.. ;P gríín..

 

 
er maður bara eitthvað svona ótrúlega flott?

 en ég var að spá.. hvað akranes  er ýkt dapurt.. ætlar engin að halda ball ?? mér langar ótrúlega að það fari að verða ball á breiðinni :/ loksins þegar ég varð 18 ára í fyrra þá altíeinu var bara engin böll og mörkin orðin af pólverjastað... og hvað á maður að gera.. fara til rvk ? það er ekkert léttast í heimi... en allavega eg vil fá BALL!! auðvitað skellir maður sér á busaballið... það verður örruglega fínt, en mér langar samt meira að fara á breiðina eða eitthvað.. :$

svo er það menningarnótt næstu helgi og líka danskir dagar, væri alveg til i danska daga aftur, var helvíti fínt í fyrra.. en ég verð að vinna þessa helgina, þannig eg læt menningarnótt nægja, er að bíða eftir svari hvort ég fái að vera kvöldvakt á sunnudegjinum afþví ég er morgunvakt á laugardegjinum, því þá get ég skemmt mér aðeins hehe.. en annars fer eg örruglega bara á bíl og kíki... svoona er lífið... :/ er búin að vera vinna hverja einustu helgi síðan ég kom frá mallorca og verð út allan ágúst, annaðhvort í olís eða sambýlinnu... monney monney,,

en já ætla fara að gera eitthvað að viti, kanski ég kíki á nyja kaffihúsið.. ? hehe bara samt ef ég finn eitthvern með mér ;P

cya - really wanna  be ya! :haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 17:34:11 / Eydis

að eiga afmæli á verslunarmannahelginni..

er ótrúlega leiðinlegt!!! engin heima til þess að stjana við mig, og þar sem ég verð að vinna um verslunarmannhelgina.. verður ALLS engin heima til þess að stjana við mig..:( hehe ég á afmæli samt á föstudegjinum, 3 ágúst og ég er í fríi á þá og ætla upp í bústað með jóni til hans family, þannig kanski verður hann góður við mig ;);)...

en ekki einsog það sé eitthvað skemmtilegt að vera orðin 19 ára, ekkert að ské.. bíð bara eftir að verða 20 ára!!;)

en já ég er bara búin að vera vinna undanfarið, í olís og á sambýlinu, svaka stuð :] ! mér finst ég eiginlega bara heppin að vera vinna þar sem það spáir ógeeð veðri um allt land.. múHAHha!

ég er komin í fatabann, ég er ekki búin að spara neitt í sumar.. Þannig ég verð að fara spara núna því ég, kadý og guðrún selma ætlum að skella okkur til deeenmark í nóvember til völu frænku, hun er nefnilega að fara í skiptinám og fer í ágúst og kemur heim í mið desember!.. hver á þá að mála mig og plokka??:$ vala þá nota ég bara sköfuna!.. Hehe, Vala er nefnilega ekkert svo ánægð með það þegar ég geri það og raka helmingin af augnabrúnni í burtu! ;) já svo verð ég að fara að spara fyrir það því þá verð ég sko að kaupa föt.. í h&m, bikbok.. urban outfitters og fleiri búðir á strikinu! hlakka til ;)

ER að deyja eftir að skólinn byrji! nennissu ekki sumari :| langar bara að fara í skólann því það er svo ógeðslega gaman :):)... fótarnir mínir eru orðnir helvíti góðir.. ætla að syna ykkur nokkrar myndir sem eg tók fyrir stuttu, en þá voru blöðrurnar farnar...

krúttlegi sólarbruninn minn, það virkar að nota matarolíu ;)

svaka fín ;)...

heryðu ætla að láta þetta duga..  sjáumst; ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 13:05:40 / Eydis

Bloggleysi..

Hoola :)

fyrirgefiði bloggleysið ég hef bara ekkert nennt að blogga síðan ég kom heim frá mallorca... það er alveg 1 og 1/2 vika síðan ég kom heim... ætla kanski aðeins að segja frá ferðinni.. en þið getið líka lesið á http://blog.central.is/goosies  ,, þar sem að aníta sif skrifaði líka eitthvað skemmtilegt. en ferðin var alveg geðveikt skemmtileg, gerðum lítið annað en að liggja í sólbaði á daginn. fjórir dagar fóru þó í moll ferð, h&m ferð, og tvisar sinnum í vansrennibrautargarðinn... en síðan voru líka alveg 5 skýjaðir dagar að ég held :) og einn alveg brjálaðslegt rok!.. fuku stólar út í laugina og læti ;) en á kvöldin fórum við nú stunum á bells sem var skemmtistaður þarna rétt hjá, eða sátum fyrir utan hótelið og horfðum á eitthverjar skemmtanir eeeeeeða sátum inni og spiluðum eða horfðum á flakkarann sem jón kom með :D en þetta var geðveikt skemmtileg ferð og mér langar bara að vera þarna enn úti, þó svo að mig langaði geðveikt heim þegar ég var úti :]

eeen síðasti sólbaðsdagurinn var nú ekki eitthvað til þess að hrópa húrra fyrir.. :( ég gaáfaða Eydís fattaði upp á að setja á okkur MaTaRoLíU!.. því ég hefði alveg heyrt það áður!.. okei við keyptum okkur matarolíu og sítrónur og kreistum sítrónurnar ofan í.. bárum á okkur og fórum á ströndina, láum þar milli 10-4 og bárum og bárum á okkur.. ég fann fyrir engum sviða een var þó orðin ELDrauð.. kl 4 ákváðum við að segja þetta gott því það var farið að malla í okkur.. fórum upp í sturtu.. kaaaaalda sturtu og gerðum okkur sætar og síðan fórum við öööll út að éta.. ég gat varla setið þarna kjurr því að mér sveið svo anskoti mikið... ég aníta jón og unnar fórum aðeins fyrr heim og í alvöru það láku tár í leigubílnum... þegar ég kom upp í íbuð þá hoppaði ég útum allt og labbaði fram og til baka til þess að láta vinda aðeins á þetta á meðan það rann ískalt vatn í baði... og jón svo ótrúlega góður við mig að hann fór niður í garð að sötra bjór! ógeðslega leiðinlegur.. á meðan ég sat grenjandi í ísköldu baði og sá blöðrurnar allar koma upp á höndunum og fótunum... gat ekki setið lengur í þessu ískalda baði þannig ég fór upp úr og hringdi grenjandi í anítu,, hun kom hlaupandi með eitthverja íslenska konu með sér sem var með íbúfen parataps og jógúrt og jón kom með (hann vissi ekki hversu alvarlegt þetta var;)... hún makaði á mig alla jógurt svo ég mundi kælast niður á meðan jón hringdi á lækni.. læknirinn kom 2 klst seinna og þá var ég búin að ligga þarna í jógurtbaði þangað til... læknirinn stakk á allar blöðrurnar með nál og batt svo utan um mig og sagði mér að koma aftur daginn eftir því það væri betra..  svo kom ég aftur dagin eftir og hun stakk á mig aftur og lét eitthver 3 krem og batt síðan aftur á mig... gaman af því, koma heim öll í bindum:/ fyrstu dagana gat ég ekki mikið stigið í  lappirnar en það mátti ekki snerta sárið því þá rifnaði það upp.. ég er enþá með ógeðslega lappir allar flagnaðar og rauðar og ég fer bráðum að fara í tíma til lítalæknist að láta hann aðeins kíkja á þetta.. en hendurnar eru fínar, allar búnar að flagna, ótrúlega flekkótt!.. en 2 stig  bruni it is..

mallorca og írskir dagar 473

munið EKKI nota matarolíu í sólbaði! nema kanski aðeins í klst á íslandi! ;D

er farin til rvk að kaupa krem á fótana :D

mallorca og írskir dagar 476 kjút?

myndir hérna til hliðar þar sem að ég tók myndir frá anítu ;D

brennda Eydís:|


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 19:46:23 / Eydis

mallorca..

jæja þá er ég bara að fara í nótt til mallorca,, þannig þetta er svona síðasta bloggið þangað til eftir 2 vikur.. :] þar sem að rakel er ekki lengur í þessu bloggi á meðan hun er á hawaii.. síðan hennar er samt rakelpals.bloggar.is en já ætla að halda áfram að vinna til 12 og legg mig síðan í 3 tíma og fer svo á flugvöllin, kem svo eldhress á írskadaga! vonandi búin að fá eitthverja brunku og svona.. ;D

vi ses :*


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 17:55:04 / Rachel

Ekki á morgun heldur hinn!

Jæjaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa ! ;D hehe... aðeins 2 dagar þangað til ég fer. Ég ætlaði nú bara að láta vita af nýju heimasíðunni minni. Á þeirri heimasíðu blogga ég úti. Hendi inn fullt af myndum - svo þið veriðið að vera dugleg að kvitta fyrir komuna! og þá meina ég ALLIR ;);)

http://rakelpals.bloggar.is

 

Cya - Rakel


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 17:08:45 / Eydis

með sól í hjarta og söng á vör:)

sælar..

hvað er að frétta af Rakel?? hef nú bara ekkert hitt hana síðan á seinustu helgi og þar á undan man ég það ekki.. hun er bara alveg hætt að nenna að vera með vinkonum sínum, hengur bara í Bgn dagin út og daginn inn... þessir kærastar!... Rakel þú ert nú að fara út til hawaii, væri fínt að fá að sjá þig kanski aðeins áður??... :] :S

jæja allavega er ég bara búin að vera að vinna síðan á mánudaginn, og er svo að fara að halda áfram að vinna þangað til ég fer út.. föstudagsnóttu, mér líður einsog ég sé 5 ára krakki, því ég get ekki beðið.. held að kadý langi svoldið til þess að kýla mig því ég hætti ekki að tala um þetta, og jón líka!.. held vöku fyrir honum á kvöldin til þess að ræða þetta aðeins;) ..

við stelpurnar hittumst um seinustu helgi héldum svona ömmuþema partý, grilluðum hambó heima hjá Rakeli, og eftir grillið hélt leið okkar heim til kadýar þar sem hun var ein heima... :] við vorum með bollu og FULLT af nammi, þannig við vorum einsog óléttar ömmur.. síðar um kvöldið kíktum við á mörkina, en ekki hvað!.. djöfull er samt miklu betra að hafa svona bannað að reykja, því maður getur alveg verið þarna inni án þess að vera að kafna úr stibbu.. en þegar við vorum komnar á mörkina var ég Rakel og kAdý, einu sem voru eftir í svona ömmubúning þannig ég og rakel ákváðum að fara að skipta, kadý sá okkur ekkert skipta þannig hun var einsog kjáni á miðju dansgólfi, frekar halló týpa..en já þetta kvöld heppnaðist helvíti vel, þrátt fyrir dramatíkina sem var heima hjá kadý fyrr um kvöldið,  aðeins til þess að lyfta okkur smá upp!..

en svo er það bara afmæli íkvöld hjá völu frænku hun á nefnilega afmæli á morgun... unni  fanst alltaf svo leiðinlegt þegar vala átti afmæli því þá fékk hun svo mikla athygli, allir mættu niðrí bæ og sungu "hæ hó jibbi jei og jibbie jei.."   (hun hélt að allir væru komnir í afmælið til völu.. )æææææææææj heimsk:/

ætla að fara að ná í unni á flugvöllin, hun fór nefnilega á bíladaga í gær og varð að koma heim fyrir kvöldið svo hun mundi nu ekki missa af afmælinu hennar völu...

 

 

Alcudia
Eydís!

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 16:45:45 / Rachel

Miðvikudagur...

Jæja þá er Fegurðarsamkeppni Íslands búin. Við skelltum okkur auðvitað, ég, Eydís, Kadý og Guðrún Selma, ásamt fleirum. Það var svaka stuð og við erum endalaust stoltar af okkar stelpum ! Fórum með strætó þar sem enginn var tilbúin til að skutla okkur. Það var fínt. Stórfurðulegt fólk með okkur þarna. Heiðrún var svo æðisleg að ná í okkur og koma með okkur að borða. Agla vann ljósmyndafyrirsætuna auðvitað ! Til hamingju með það Agla:* Og til hamingju Helena og Fríða með frábæra frammistöðu!  Svo eftir keppnina vorum við bara einar eftir eiginlega á brodway! Fólk farið að taka saman og við ennþá þarna. Stebbi kom svo og sótti okkur og skutlaði okkur til Öglu og Salvars. Fengum okkur að borða á aktu taktu og skelltum okkur svo bara niðrí bæ! Allir með skilríki nema ég. Sem var ekki gaman. Þannig Kadý, Eydís, Agla og Salvar fóru á hverfis og ég kíkti þá bara á prikið ! Hitti Boða. Svo fór hann heim þannig ég bara beið eftir Aroni.

135-3540_IMG

135-3536_IMG

Á laugardeginum fór ég í útskriftarpartý til Sölva frænda ! Mjög gaman.

Svo er ég bara búin að vera í sveitinni. Svo rosalega notalegt að vera þar. Búin að fara í pottinn og svona. Fórum í afmæli til Þórunnar Maríu Óðinsdóttur í gær. 35 ára gella.

Búin að henda inn myndum - Endilega kíkja og kvitta !

RaKeLLo*


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 13:52:26 / Eydis

Oi bitch, you is buff !

Hvar er Bobby Fisher núna ? Er hann bara í faðmi fjölskyldunar ? Á hann fjölskyldu hér ? Mér finnst svo langt síðann að hann kom.. Ég er alveg hissa á að vera ekkert búinn að rekast á hann ! Var alveg búin að ákveða hvað ég mundi segja við hann ef ég mundi hitta hann út á götu. "I am just a girl standing in a front of a boy, asking him to love her" Svo myndi ég labba áfram aðeins og hann mundi snúa sér í hálfan hring og horfa á eftir mér og þá mundi ég koma aftur til hans og hvísla í eyrað hans "How can we be so diffrent but feel so much a like" og svo mundi ég bara labba alveg í burtu. Spurning hvort hann kæmi á eftir mér eða ekki ??

 min stúre weirdo systa;):*

 

-311 hafa heimsótt síðuna í dag, viljiði tjá ykkur,,!:|


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8